
HÁDEGISVERÐ – FISKUR O.FL.
(Uppfært í lok apríl).
Hér eru listuð góð hádegisverð á stöðum með stóra skráningu á síðunni okkar. Áherslan hér er á fisk dagsins sem er oftast á litlu hærra verði en hamborgari og franskar kostar víða: Um að gera að prófa þessa staði.
á ÍSLENSKA BARNUM – Réttur dagsins til dæmis Fiskur dagsins, á aðeins kr. 1.990.- m. súpu og kaffi!.
Sjávarréttasúpa eða íslensk kjötsúpa á kr. 1.970.
Á JÖRGENSSEN VIÐ HLEMM kostar fiskur dagsins aðeins kr. 2.200 með súpu!. Einkaklúbburinn, Vodafone Vip; Nova og fleiri, að auki með 2 fyrir 1.
Á FISKFÉLAGINU færðu fisk dagsins á kr. 2.990 og lítinn sushi platta dagsins á kr. 2.390 (8 stk.).
MATARKJALLARINN, býður meðal annars fisk dagsins á aðeins kr. 2.490, og svínasnitzel á kr. 2.500.
Á NAUTHÓL færðu ferskasta fiskur dagsins á kr. 2,990. (miðvikud.-fös), og einnig brunch um helgar.
Á KOL býðst m.a. ferskasti fiskur dagsins á kr. 2.890. (miðvikud.-fös) og tveir smáréttir á kr. 2.990. Einnig flottur brunch um helgar.
á APÓTEKINU, tveggja rétta seðill (val á milli 3ja rétta) á kr. 3.890. Oft TILBOÐ sbr. í maí Fiskiþrenna á aðeins kr. 2.490 kr.
á SÆTA SVÍNINU færðu ferskasta fisk dagsins á kr. 2.390.
Á SJÁVARGRILLINU, fiskur dagsins kr. 2.490 og rétt dagsins á kr. 2.690.
Á TÍAN, Grensásvegi, kínverskum stað færðu hádegistilboð á aðeins kr. 1.590.
Á VON MATHÚS í Hafnarfirði, færðu ferskasta fisk dagsins eða kjötrétt á aðeins kr. 2.190. Þri-föstudag.
AKUREYRI:
GREIFINN – Súpa dagsins brauð og salatbland á aðeins kr. 1.590 og Réttur dagsins á kr. 2.890.
MÚLABERG – Hótel Kea. Val um fisk dagsins eða rétt dagsins á aðeins kr. 2.300. með súpu!.
Á Facebook síðu okkar höfum við skrifað um nokkra þessa staði og fleiri í hádeginu bæði í Reykjavík og á Akureyri.