Ísafold Restaurant

Heimsótt 1148 sinnum, 2 Heimsóknir í dag

Þingholtstræti 5, 101 Reykjavík

595 8500

Alla daga frá 11:30-24.

Staðsetning á korti

Veitingastaðurinn er lokaður vegna Covid o.fl., við bendum á að Jörgensen í sömu keðju er opinn. :).

Ísafold Restaurant er glæsilegur veitingastaður staðsettur á Þingholtsstræti 5 í hjarta borgarinnar. Matreiðslan á Ísafold er í hæsta gæðaflokki og lögð er áhersla á að nota eingöngu allra besta hráefni sem fyrirfinnst og eru því birgjarnir sérvaldir með velferð dýra og náttúru að leiðarljósi. Á Ísafold er lögð áhersla á norræna matargerð  með fagmennsku í fyrirrúmi og andrúmsloftið er einstaklega vinalegt og afslappað. Þar er gott úrval kokteila, viskí, vína og annarra drykkja og er Happy hour á barnum alla daga milli kl. 17:00 og 19:00.
Þemað í innanhússhönnun Ísafoldar er líkt og nafn veitingastaðarins ber með sér íslensk náttúra með samspili vatns, viðar og hrauns. Ísafold er með sæti fyrir 50 manns ásamt góðu úrvali af hópmatseðlum sem og smáréttaseðlum og er því tilvalið fyrir hópa, smærri og stærri. Ísafold leggur sig fram við að bjóða upp á sælkeramat og úrvalsþjónustu í notalegu andrúmslofti.

Opnunartími er frá 11:30 til miðnættis alla daga vikunnar.

Facebook Comments

2

8 - 55

Fleiri staðir

Bæta við áliti

Your Rating for this listing:

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.